Erindi sent til Sólveigar og Salvarar 15. nóv. 2006
Til Sólveigar Jakobsdóttur og fagráðs í Upplýsingatækni og miðlun
Á deildarráðsfundi 7.nóv. var fjallað um sérhæfingu í nýju M.Ed. námi. Samþykkt var tillaga um að allir þyrftu að taka minnst 15 einingar á einu sviði, en gætu að öðru leyti mótað eigin sérhæfingu til 30 eininga. Deildarforseta og forstöðumönnum námsbrauta (ásamt námsnefndum) var falið að halda áfram með mótun sérhæfingar sem unnt er og skynsamlegt að bjóða upp á strax haustið 2007, sbr meðfylgjandi vinnuplagg.
Við óskum hér með eftir að þið gerið tillögu að 30 eininga sérhæfingu í Tölvu- og upplýsingatækni.
1. Setja þarf fram stutta lýsingu á markmiðum sérhæfingarinnar og á fyrirkomulagi vettvangsnáms.
2. Tilgreina þarf hvaða námskeið yrðu í boði
3. Setja þarf af stað vinnu við námskeiðslýsingar eins fljótt og unnt er - þar sem tekið er tillit til viðmiðabæklings.
Við óskum eftir að fá upplýsingarnar sem beðið er um undir lið 1 og 2 í seinasta lagi 30. nóvember.
Með kveðju
Ragnhildur Bjarnadóttir deildarforseti
Sigurður Konráðsson forstöðumaður kennarabrautar
.................................................
Ragnhildur Bjarnadóttir
deildarforseti framhaldsdeildar
Kennaraháskóla Íslands/Iceland University of Education